
Knattspyrnu og boltaskóli FH
Knattspyrnuskóli FH 2013
Skráning í gegnum Nora – smella hér
Námskeið hjá yngri hópi (börn fædd 2003-2007):
1. námskeið 10. – 14. júní
2. námskeið 18. – 21. júní (4 dagar)
3. námskeið 24. – 28. júní
4. námskeið 1. – 5. júlí
5. námskeið 8. – 12. júlí
6. námskeið 15. – 19. júlí
7. námskeið 12. – 16. ágúst
- Knattspyrnuskólinn stendur yfir frá 9.00-12.00 fyrir 5-10 ára. Krakkarnir þurfa að hafa með sér hollt nesti og vera klædd eftir veðri.
- Mögulegt er fyrir börnin að skrá sig í hádegismat að loknum Knattspyrnuskóla og fá samloku, ávexti og drykki í hádeginu. Þetta gæti m.a. nýst þeim sem fara á fótboltaæfingu eftir hádegi. Kostar 1500 krónur fyrir vikuna – greitt á staðnum.
- Boðið er upp á gæslu frá 8.00-9.00.
- Áhersla er lögð á að þátttakendur fái verkefni við sitt hæfi. Farið verður í grunnþætti knattspyrnunnar og leikgleði höfð í fyrirrúmi. Dagskráin er brotin upp nokkrum sinnum yfir sumarið, farið í ferðir og auk þess að heimsóknir frá þekktu knattspyrnufólki verða á döfinni.
- Verð fyrir hvert námskeið: 5000 kr. (4000 kr. á 2. námskeið) Ef barn tekur þátt á fimm námskeiðum er það sjötta (og sjöunda) að kostnaðarlausu.
- Skráning á námskeiðin fer fram í gegnum NORA-kerfið og hefst 15. maí næstkomandi.
Námskeið hjá eldri hópi (börn fædd 2000-2002)
1. námskeið 10. – 14. júní
2. námskeið 18. – 21. júní (4 dagar)
3. námskeið 24. – 28. júní
4. námskeið 8. – 12. júlí
5. námskeið 12. – 16. ágúst
- Knattspyrnuskólinn stendur yfir frá 13.00-15.00 fyrir 10-13 ára.
- Áhersla er lögð á að bæta tæknilega getu krakkana og verður farið markvisst í alla grunnþætti knattspyrnunnar. Unnið verður í nánu samstarfi við þjálfara 5. og 4. flokka karla og kvenna, svo álagið verði ekki of mikið á krakkana þegar kemur að leikjum og æfingum hjá flokknum.
- Dagskráin verður brotin upp nokkrum sinnum yfir sumarið, farið í ferðir, sett upp í knattþrautir og fótboltagolfmót auk þess að heimsóknir frá þekktu knattspyrnufólki verða á döfinni.
- Verð fyrir hvert námskeið: 5000 kr.(4000 kr. á 2. námskeið). 15.000 kr. fyrir allt sumarið.
- Skráning á námskeiðin fer fram í gegnum NORA-kerfið og hefst 15. maí næstkomandi.
Boltaskólinn (börn fædd 2008 og 2009)
1. námskeið 8. – 12. júlí
2. námskeið 15. – 19. júlí
3.