KNATTSPYRNUDEILD FH OG ACTAVIS Á ÍSLANDI FRAMLENGJA SAMSTARFIÐ

 

Actavis og FH taka saman tuttugasta tímabilið í röð.

Knattspyrnudeild FH og Actavis á Íslandi skrifuðu síðasta föstudag undir samstarfssamning sem gildir til loka árs 2020. Samningurinn markar söguleg tímamót því sumarið 2020 verður 20. tímabilið í röð sem FH og Actavis mæta saman til leiks í fyrsta leik Íslandsmótsins í knattspyrnu.

„Nú, eins og þegar samningurinn var undirritaður í fyrsta sinn, er það mikið gleðiefni að þetta öfluga fyrirtæki í Hafnarfirðinum skuli styðja við íþrótta- og æskulýðsstarf í bæjarfélaginu, í öllum okkar flokkum. Þessi liðsstyrkur, sem okkur barst fyrst í janúar 2001, hefur reynst drjúgur liðsfélagi í okkar starfi í gegnum árin“, segir Valdimar Svavarsson, formaður knattspyrnudeildar FH. Actavis hefur verið aðalstyrktaraðili knattspyrnudeildar FH síðan í janúar 2001, þegar forveri Actavis, Delta, gerði fyrst samning við knattspyrnudeildina.

„Ef þessi samstarfssamningur væri meistaraflokksleikmaður væru sennilega allir búnir að afskrifa hann fyrir löngu vegna aldurs og hnjasks í gegnum tíðina. Við hjá Actavis erum fyrst og fremst þakklát fyrir að fá að taka þátt í einu tímabili í viðbót með knattspyrnudeildinni í öllum flokkum“, segir Sigfús Örn Guðmundsson, sviðsstjóri samskiptasviðs Actavis. „Actavis er enn jafnstolt af því að taka þátt í starfinu og það var í fyrsta sinn, þegar lið FH mætti til leiks með þáverandi merki fyrirtækisins framan á búningunum og er það okkur mikið gleðiefni að geta með þessum samningi haldið áfram að styðja við uppbygginguna á öflugri starfsemi knattspyrnudeildar FH.“

Þessi samningur FH og Actavis endurspeglar hlutverk Actavis í samfélaginu, sem er að efla heilsu og lífsgæði almennings. Stuðningur við grasrótarstarf íþrótta- og æskulýðshreyfinga í nærumhverfi fyrirtækisins er mikilvægur þáttur í uppfylla það hlutverk.

Samvinna Actavis og FH hefur verið gæfurík fyrir báða aðila og hefur hjálpað til við að ná markmiðum beggja og knattspyrnudeildin er þakklát fyrir dyggan stuðning Actavis í gegnum árin, stuðning sem hefur verið mjög mikilvægur í uppbyggingu knattspyrnudeildarinnar, því það skiptir öllu í þessu starfi að hafa trausta bakhjarla sem standa með félaginu til langs tíma.

Fyrir hönd Knattspyrnudeildar FH

Valdimar Svavarsson, formaður

Fyrir hönd Actavis á Íslandi

Sigfús Örn Guðmundsson, sviðsstjóri samskiptasviðs

Aðrar fréttir