Knattspyrnudómaranámskeið

Knattspyrnudómaranámskeið

Knattspyrnudómaranámskeið

Mánudaginn 22. febrúar kl. 19:00 – 21:00.
Knattspyrnudeild FH hefur ákveðið að halda dómaranámskeið í samvinnu við KSÍ

Fyrirkomulag:
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við FH í Kaplakrika mánudaginn 22. febrúar kl. 19:00 – 21:00. Vonandi sjá foreldrar iðkenda sem og aðrir stuðningsmenn félagsins sér fært um að mæta á þetta námskeið. 
Því knattspyrnudeild FH þarf sjá um að dómarar og aðstoðardómarar komi á heimaleiki félagsins. Yfir sumarið eru þetta um 250 leikir og það er stefna hjá FH að dómaramálin hjá félaginu séu í góðu lagi. Það væri því mjög gott ef einhverjir foreldrar og stuðningsmenn sjái sér fært um að mæta og taka dómarapróf með það í huga að aðstoða við dómgæslu síðar meir. Því fleiri sem mæta því auðveldara er að manna leiki í sumar.

 

Aðaláhersla:
Aðaláherslan á námskeiðinu verða knattspyrnulögin en auk þess kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir. Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi mánudaginn 29. febrúar kl. 19.00. 
Námskeiðið er ókeypis.

Námskeiðið gefur réttindi til þess að dæma sem “unglingadómari”, en það er dómgæsla og aðstoðardómgæsla í yngri flokkum í fótbolta. Talsverð fríðindi fylgja því að hafa þessi réttindi en handahafar dómaraskírteinis fá frítt(eftir 10 leiki dæmda) inná alla leiki í Íslandsmóti í öllum deildum sem og landsleiki.

Steinar Ó. Stephensen Dómarastjóri FH, Sími 8957077 netfang: steinar@hvaleyrarskoli.is
Skráning á námskeiðið er á netfanginu hér að ofan.

Aðrar fréttir