Knattspyrnudómaranámskeið FH

Knattspyrnudómaranámskeið FH

Knattspyrnudómaranámskeið

Miðvikudaginn 26. mars  kl. 19.00 – 20.30  í Kaplakrika.

Knattspyrnudeild FH hefur ákveðið að halda dómaranámskeið í samvinnu við KSÍ

Fyrirkomulag:
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við FH í Kaplakrika þriðjudaginn  

Aðaláherslan á námskeiðinu verða knattspyrnulögin en auk þess
kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir.
Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi 2. apríl  kl. 19.00.
Námskeiðið er ókeypis.

 

Gefur námskeiðið réttindi til þess að dæma sem “unglingadómari”, en það er dómgæsla og aðstoðardómgæsla í yngri flokkum í fótbolta. Talsverð fríðindi fylgja því að hafa þessi réttindi en handahafar dómaraskírteinis fá frítt(eftir 10 leiki dæmda) inná alla leiki í Íslandsmóti í öllum deildum. Það er alltaf mikil þörf fyrir góða knattspyrnudómara og hverjum þeim knattspyrnumanni sem hyggst reyna að ná langt á knattspyrnuvellinum sjálfum er það hollt að setja sig í spor dómarans, þekkja knattspyrnulögin og þær forsendur sem dómarar byggja ákvarðanir sínar á. Þá er það ekki síður mikilvægt fyrir foreldra og stuðningsmenn hvers félags að hafa grunnþekkingu á knattspyrnulögunum, þannig verða þeir hæfari til að miðla réttum ábendingum til ungra og eldri knattspyrnumanna. Þá er sjálfsagt að benda á að ekki er síður verið að höfða til þess að stúlkur/konur sæki knattspyrnudómaranámskeið. Vonandi sjá foreldrar iðkenda sér fært um að mæta á þetta námskeið. Því knattspyrnudeild FH þarf sjá um að dómarar og aðstoðardómarar  komi á heimaleiki félagsins.

Steinar Ó Stephensen með dóttur sinni Sunnu

 Yfir sumarið eru þetta um 200 leikir og það stefna hjá FH að dómaramálin hjá félaginu séu í góðu lagi. Það væri því mjög gott ef einhverjir foreldrar sjái sér fært um að mæta og taka dómarapróf með það í huga að aðstoða við dómgæslu síðar meir. Því fleiri foreldrar sem mæta því auðveldara er að manna leiki í sumar.

Knattspyrnudeild FH hefur síðastliðin 2 ár fengið dómaraverðlaun frá KSÍ fyrir fyrirmyndar framkvæmd í dómara

málum og gott aðahald vegna þess. Steinar Ó. Stephensen hefur séð um þessi mál fyrir hönd FH og unnið gríðarlega gott og óeigingjarnt starf í þágu knattspyrnudeildar FH og þakkar stj&

Aðrar fréttir