
Knattspyrnuskóli FH
Krakkar fæddir 2010-2016:
- námskeið 1 : 12. – 16. júní
- námskeið 2 : 19. – 23. júní
- námskeið 3: 26. – 30. júní
- námskeið 4: 3. – 7. júlí
- námskeið 5: 10 – 14. júlí
- námskeið 6: 17. – 21. júlí
- námskeið 7: 24 – 28.júlí
- námskeið 8: 31. – 4. ágúst
- námskeið 9: 8. – 11. ágúst
- námskeið 10: 14.-18. ágúst
Knattspyrnuskólinn byrjar stundvíslega kl. 09:00 og stendur til 12:00 fyrir 6-12 ára (7.-6.flokkur). Krakkarnir þurfa að hafa með sér hollt nesti og vera klædd eftir veðri. Boðið upp á gæslu í íþróttahúsinu frá 08:00-09:00. Gæslan fer fram í Risanum. Gæslan er innifalin í verðinu. Við æfum í Risanum, Dvergnum og í Skessunni
Æfingar hjá 6. og 7.flokk eru frá 09:00-10:00 þrjá daga vikunnar. Einnig er boðið upp á tvær æfingar milli kl 16:00 og 17:00 tvo daga í viku fyrir þá sem ekki komast á morgnana. Þeir sem fara svo á námskeið hjá öðrum deildum innan FH eftir hádegi geta fengið hádegismat í kaffihúsinu í Kaplakrika. Verð fyrir mat í hádeginu er 2500 krónur vikan.
Knattspyrnuskólanum er áhersla lögð á að þátttakendur fái verkefni við sitt hæfi. Farið verður í grunnþætti knattspyrnunnar og leikgleði höfð í fyrirrúmi. Dagskráin er brotin upp vikulega, haldið verður HM-mót hvern föstudag og auk þess að heimsóknir frá þekktu knattspyrnufólki verða fastur liður.
Verð fyrir hvert námskeið er 7700 kr (hægt er að borga stakan dag fyrir 2000 kr).. Skráning á námskeiðin fer fram í gegnum Sportabler shop og er tengill á síðuna hér að neðan. Ef iðkandi kemst ekki alla dagana er einnig hægt að borga fyrir staka daga. Hægt er að skrá á staðnum.
https://www.sportabler.com/shop/fh/fotbolti
BOLTASKÓLINN
Krakkar fæddir 2017-2020:
- námskeið 1: 10. – 14. júlí
- námskeið 2: 17. – 21. júlí
- námskeið 3: 24. – 28. júlí
- námskeið 4: 31.- 4.ágúst
- námskeið 5: 8.- 11.ágúst
- Boltaskólinn stendur yfir frá 9.00-12.00. Krakkarnir þurfa að hafa með sér hollt nesti og vera klædd eftir veðri. Boðið er upp á gæslu frá 8.00-9.00.
- Farið verður í ýmsa hreyfi- og boltaleiki og boltar af ýmsum stærðum og gerðum kynntir fyrir krökkunum. Námskeiðið fer fram í íþróttasalnum okkar en einnig fá börnin að kynnast útisvæðum í Kaplakrika og knatthúsunum.
- Verð fyrir hvert námskeið er 7700 kr (hægt er að borga stakan dag fyrir 2000 kr). Skráning á námskeiðin fer fram í gegnum Sportabler shop, sjá tengil hér að neðan . Ef iðkandi kemst ekki alla dagana er hægt að borga fyrir staka daga.