Kristján Arason ráðinn íþróttastjóri

Kristján Arason ráðinn íþróttastjóri

.

Mun hann koma að þjálfun meistaraflokks karla
og sinna einnig unglingaflokkum félagsins. Einar Andri Einarsson verður
áfram þjálfari liðsins en Kristján verður í stóru hlutverki sem snýr að
þjálfuninni og hinum ýmsu faglegum þáttum sem koma að henni.

Í samtali við Morgunblaðið sagði Kristjan þetta: ,,Ég
hef verið að gæla við það undanfarið að fara aftur út í þjálfunina og
þegar mér bauðst þetta tækifæri hjá FH þá gat ég ekki neitað því. Hjá
FH liggja mínar rætur og ég er bara mjög spenntur fyrir þessu. Ég mun
sinna faglegum þáttum, fara í leikskipulagið og vinna þetta í samvinnu
við Einar Andra,”

Tekið af mbl.is

Aðrar fréttir