Kveðja til Geirs Hallsteinssonar frá Ingvari Viktorssyni
Sælir félagar og vinir,
Mig langar til að setja hér nokkur orð á blað vegna þess að strákurinn hann Geir Hallsteinsson er orðinn áttræður.
Geir er fæddur 7. ágúst 1946 yngsta barn hjónanna Ingibjargar Árnadóttur og Hallsteins Hinrikssonar stofnanda FH. Sá maður sem við FH-ingar eigum tilveru okkar að þakka. Systkinin á Tjarnarbrautinni Ingvar, Örn og Sylvía voru öll mikið íþróttafólk og unnu öll Íslandsmeistaratitla fyrir FH. Öll voru þau landsliðsfólk.
Sem strákur var Geir frekar stuttur en leiknin og boltameðferðin leyndi sér aldrei. Hann var fyrst Íslandsmeistari í 3. flokki árið 1961 þegar hann var um 14 ára gamall og fyrsti titillinn í meistaraflokki var utanhúss árið 1964. FH-ingar unnu mótið nokkuð örugglega en mikla athygli vakti framganga eins nýliða í FH liðinu. Í frétt í einu dagblaðanna stóð: “Enn sem fyrr voru það þeir Ragnar Jónsson, Birgir Björnsson og Kristján Stefánsson, sem báru upp lið FH en sérstaka athygli vakti yngsti sonur Hallsteins hins ötula þjálfara liðsins, Geir, sem er mjög vaxandi leikmaður”.
Geir varð strax besti handknattleiksmaður landsins og þótt víðar væri leitað. Geir lék alls 431 leik með FH og vann 19 Íslandsmeistaratitla sem leikmaður og þjálfari. Þá lék hann alls 118 landsleiki og frægt er þegar danskt stórblað birti opnu þar sem fyrirsögnin var “Ti danskere og Islands numer 10” þar sem landsliðsmenn og þjálfarar Dana lístu leikmanninum Geir Hallsteinssyni. Árið 1969 var Geir kjörinn íþróttamaður ársins á Íslandi sem mesta viðurkenning sem nokkur íþróttmaður getur öðlast.
1973 gerði Geir samning við þýska liðið Göppingen og lék með þeim í eitt ár og sló rækilega í gegn í Þýsklandi.
En Geir var ekki bara í handboltanum, hann lék árið 1965 með 2.flokki karla í fótbolta en það var fyrsta lið í sögu FH sem lék til úrslita í Íslandsmóti. Þá lék hann með FH liðinu sem sigraði þriðju deildina 1967, fyrsta sigur FH í Íslandsmóti í fótbolta.
Eftir Þýskalandsdvölina sneri Geir aftur í FH, sem leikmaður og þjálfari. Geir var lærður íþróttakennari og var það mikil blessun fyrir Hafnarfjörð að hafa slíkan mann til að kenna unglingum bæjarins íþróttir.
Geir kvæntist Ingibjörgu Eldon Logadóttur, sem lést árið 2017. Þau eignuðust fjögur börn þau Arnar, Brynjar, Loga og Nína. Eftir að Geir hætti kennslu vann hann fjölda ára í Kaplakrika og naut sín vel þar.
Geir innilega afmæliskveðjur til þín og fjölskyldunnar.
Ingvar Viktorsson

Ingvar hlakkar til að fá sér köku með Geir á 100 ára afmæli FH 2029

3. deildar meistarar í knattspyrnu 1967 (Geir er annar frá vinstri í efri röð)

3. flokkur árið 1961 í handknattleik (Geir er fyrstur til vinstri í neðri röð)

2. flokkur karla sem lék fyrst FH-liða til úrslita í knattspyrnu 1965 (Geir er lengst til hægri í efri röð)