
Lausir útleigutímar í Risanum og Dvergnum
Risinn
Risinn er yfirbyggt knatthús á stærð við hálfan knattspyrnuvöll 66*44m. Húsið er ekki upphitað en er klætt með dúki og því mjög gott að stunda æfingar þar inni í skjóli. Stærðin á knattspyrnuvellinum hentar mjög vel fyrir flesta hópa.
Útleigutímarnir eru frá 22:00 – 23:00 alla virka daga og frá kl 17:00 – 23:00 á sunnudögum, klst hver tími. Einnig eru lausir hádegistímar á virkum dögum og hafa þeir verið vinsælir hjá fyrirtækjum og skólum.
Útleigutímar eru:
Virkir dagar frá kl 09:00 – 14:00 og frá kl 22:00 til 23:00
Sunnudagar frá 18:00 til 23:00
Leigugjald
8.500 kr fyrir hálfan völl
15.000 kr fyrir heilan völl
Dvergurinn
Dvergurinn er yfirbyggt knatthús 51*25m á stærð. Í húsinu verður ylur en ekki full hitað. Húsið er eins og Risinn klætt með dúk og því mjög gott stunda æfingar þar í skjóli. Stærðin á húsinu hentar vel fyrir hópa, æfingar og ýmis önnur tækifæri.
Útleigutímar eru:
Virkir dagar frá kl 09:00 til 14:00 og frá kl 20:00 til 23:00
Laugardagar frá kl 16:00 til 17:00
Sunnudagar frá 17:00 til 23:00
Leigugjald
Er mismunandi eftir tímasetningu en á bilinu 7.000 – 12.000 kr
Til að fá frekari upplýsingar, vinsamlegast hafið samband við Axel Guðmundsson í gegnum axel@fh.is