Leikir framundan í handboltanum

Leikir framundan í handboltanum

Leikmenn kvenna og karlaliðs FH eru nú í óðaönn að undirbúa sig fyrir
seinni hluta Íslandsmótsins og æfa af krafti þessa dagana eftir
kærkomið jólafrí.

   

Stelpurnar, sem stimpluðu sig ærlega inn í mótið eftir yfirburðarsigur á Val í síðasta leik fyrir jól, hefja leik laugardaginn 10. janúar þegar Fram stúlkur koma í heimsókn í Krikann. Þær eiga síðan Stjörnuna heima viku seinna eða 17. janúar. Stúlkurnar skunda svo á Ásvelli þann 24. janúar og heyja aðra orrystu tímabilsins við Haukakonur. Þessir leikir hefjast allir kl 16.

Strákarnir eru í töluvert lengra fríi en svo skemmtilega vill til að þeir eiga framundan nákvæmlega sama prógram og stelpurnar. Þeir taka á móti Frömurum í Kaplakrika þann 22. janúar, eiga svo Stjörnuna heima 29. janúar og þriðju orrystuna á tímabilinu við Haukamenn að Ásvöllum 5. febrúar. Leikirnir hefjast allir kl 19:30.

Hörkuprógramm hjá báðum liðum og einstaklega skemmtileg handboltaveisla framundan hjá FHingum!

Við hvetjum FHinga nær sem fjær og unga sem aldna að halda áfram á nýja árinu að styðja við bakið á frábærum meistaraflokks-liðum félagsins.

Áfram FH!

Aðrar fréttir