Sigríður Arnfjörð Ólafsdóttir framlengir við FH

Sigríður Arnfjörð Ólafsdóttir framlengir við FH

Sigríður sem gekk til liðs við FH fyrir síðasta tímabil hefur ákveðið að taka slaginn af fullum krafti næsta ár.

Sigríður kom til liðs við FH í upphafi síðasta tímabils og var markvörðum FH til halds og trausts, en vegna anna gat hún ekki beitt sér að fullu með liðinu.

Nú hefur hún hinsvegar ákveðið að taka slaginn og mun leysa Guðrúnu Ósk Maríusdóttur af hólmi sem ákvað að ganga til liðs við Fram að loknu nýliðnu tímabili.

Sigríður er uppalin FH-ingur en lék um tíma með Val og varð meðal annars Íslandsmeistari með þeim.

 

Stjórn handknattleiksdeildar FH lýsir yfir mikilli ánægju með að Sigríður hafi ákveðið að binda skóna fast á sig næsta vetur og verja mark Fimleikafélagsins.

Aðrar fréttir