Steinunn Snorradóttir framlengir við FH

Steinunn Snorradóttir framlengir við FH

Steinunn Snorradóttir hornamaðurinn öflugi hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við FH.

Leikmannahópur FH styrkist því enn og eru spennandi tímar framundan í Kaplakrika.

Steinunn hefur leikið með meistaraflokki FH í mörg ár og mun reynsla hennar og metnaður vera FH liðinu styrkur í Olísdeildinni næstu árin.

Stjórn handknattleiksdeildar FH lýsir yfir mikilli ánægju með þá ákvörðun Steinunnar að framlengja samning sinn og væntir mikils af henni og liðinu öllu.

Aðrar fréttir