Leikur fyrir austan í kvöld!

Leikur fyrir austan í kvöld!

              

Selfoss                             Vs                                 FH

Selfossi, föstudagurinn 18 apríl 2008, kl 19:15

Í kvöld verður háður leikur Selfyssinga og FHinga í 1. deild karla í handbolta. Leikurinn verður fyrir austan fjall kl 19:15. Þetta verður hörkuleikur, svo mikið er víst en það skal dregið í efa að Selfyssingar sætti sig við fjórða tapið gegn FH í vetur.

Kynning á leiknum verður af skornum skammti að þessu sinni vegna óviðráðanlegra tæknilegra aðstæðna. Það verður samt sem áður ítarleg umfjöllun um leikinn að honum loknum.

Ég hvet ykkur kæru FHingar að kíkja austur á Selfoss og sjá hörkuleik. Við FHingar stefnum á stórsigur í deildinni!

ÁFRAM FH

Heiðar Örn Arnarson

Aðrar fréttir