Lindsey Harris gengur til liðs við FH

Markvörðurinn Lindsey Harris hefur skrifað undir samning við FH um að spila með meistaraflokki kvenna á komandi keppnistímabili. Lindsey er fædd árið 1993 og kemur beint úr háskólaboltanum í Bandaríkjunum, en undanfarin þrjú ár hefur hún spilað með University of North Carolina (UNC), sem er með eitt af sterkustu liðunum í bandaríska háskólafótboltanum. Að auki hefur Lindsey æft með U23 ára liði Bandríkjanna. Hér er því um öflugan markmann að ræða sem kemur til með að styrkja lið FH næsta sumar í Pepsídeildinni.

FH liðið endaði síðast tímabil í 6. sæti Pepsídeildarinnar eftir að hafa komið upp úr 1. deildinni árið áður. Uppistaðan í FH liðinu eru ungar og efnilegar stelpur og því er árangur síðasta tímabils góður. Er það ætlun FH að byggja ofan á þennan góða árangur og stefnt er að því að búa til enn betra lið á næstu árum sem getur keppt við bestu lið deildarinnar.

Það er ljóst að koma Lindsey Harris til FH styrkir hópinn hjá meistaraflokki kvenna og við bjóðum hana velkomna til félagsins.

Aðrar fréttir

Secret Link