Sunnudaginn 9. september kl. 14:00 verður lokahóf yngri flokka FH 6.,7. og 8. fl.
haldið í íþróttasal FH Kaplakrika.
Dagskrá:
Þjálfarar fara yfir starf flokkanna sl. ár og allir iðkendur fá afhenta viðurkenningu.
Tekin verður hópmynd af hverjum flokki og verða þær myndir svo aðgengilegar inni á
Facebooksíðu deildarinnar. www.facebook.com/FHfotbolti
Að lokum verður öllum iðkendum boðið upp á hressingu niðri í íþróttarsal og eru
foreldrar hvattir til að koma með eitthvað smávegis á sameiginlegt hlaðborð sem
verður sett upp í hátíðarsalnum Sjónarhóli þar sem verður búið að hella upp á
rjúkandi kaffi.
Kynnir verður Friðrik Dór.
Við hvetjum alla iðkendur til að mæta í FH galla með bros á vör.