Lokahóf yngri flokka í fótbolta

Lokahóf yngri flokka í fótbolta

Lokahóf yngri flokka verður haldið í Kaplakrika sunnudaginn 20. september.
Hjá 6. – 8. flokki hefst lokahófið kl. 12. en hjá 3. – 5. flokki hefst það kl. 14. Iðkendum verður boðið upp á pizzur og safa en foreldrum upp á rótsterkt Kaplakaffi!

Leikur Breiðabliks og FH í Pepsi-deild karla hefst á Kópavogsvelli kl. 16:30 sama dag en FH getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með jafntefli eða sigri. Boðið verður upp á ókeypis rútuferðir á leikinn frá Kaplakrika kl. 15:30. Athugið að iðkendur eru á eigin ábyrgð þ.a. það er æskilegt að foreldrar fylgi ungum börnum á leikinn.

Aðrar fréttir