Lokahóf yngri flokka í handbolta

Lokahóf yngri flokka í handbolta

Glæsilegt lokahóf yngri flokkanna í handbolta verður haldið laugardaginn 9.maí milli klukkan 11 og 13. í Kaplakrika.  Veittar verða viðurkenningar fyrir góðan árangur í vetur í öllum flokkum og síðan er þjálfari ársins útnefndur.  Að þessu loknu verða grillaðar pylsur fyrir börnin en kaffiveitingar fyrir foreldra. Til þess að kaffiborðið verði sem glæsilegast biðjum við ykkur, foreldrar, að koma með köku eða annað góðgæti á kaffiborðið.

Þetta er skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Sjáumst laugardaginn 9.maí!!!

Aðrar fréttir