LUV – hátíð í Kaplakrika

LUV – hátíð í Kaplakrika fótbolta og handbolta veisla.

LUV-hátíðin er haldin í minningu Hermanns Fannars Valgarðssonar, mikils FH-ings sem lést langt um aldur fram árið 2011.

Toppslagur FH og Breiðabliks í pepsideild karla og fyrsti heimaleikur í Olísdeildinni FH – Valur.

luv

Fótbolti

Mótherji: Breiðablik
Hvar: Kaplakrikavöllur
Hvenær: Sunnudaginn 11.sept
Klukkan: 17:00

Leikurinn hefst klukkan 17:00. Fyrir leik verður dúndur fjör frá kl 16:00 á nýja pallinum okkar hér í Kaplakrika. Þar verða grillaðir hamborgarar, Reykjavík Chips gefur 100 fyrstu sem koma á völlinn skammt af frönskum. Mætum tímanlega á völlinn og áfram FH!

 

Handbolti

Mótherji: Valur
Hvar: Kaplakriki
Hvenær: Sunnudaginn 11.sept
Klukkan: 19:15

 

20150913-DSC_5847

Hinn árlega LUV-hátíð fer fram á Kaplakrika á sunnudaginn. Hún er stærri en áður þar sem í þetta sinn verða tveir LUV-leikir. Fyrst er það toppslagur í Pepsideildinni, FH-Breiðablik kl 17:00 og strax að honum loknum verður það stórleikur FH og Vals í fyrstu umferð Olísdeildarinnar í handbolta.

Báðir leikir eru gríðarlega mikilvægir fyrir FH. Í fótboltanum situr FH-liðið á toppi Pepsi-deildar karla með 37 stig, sjö stigum meira en Breiðablik sem situr í öðru sæti. Í handboltanum hefur FH-liðið spilað mjög vel á undirbúningstímabilinu og er klárir í erfiðan fyrsta leik, gegn bikarmeisturum Vals.

Hluti aðgangseyris fótboltaleiksins rennur í LUV-sjóðinn sem hefur stutt mörg góð málefni á síðustu árum meðal annars við bakið á ungum FH-ingum. Frítt er inn á handboltaleikinn en á móti kemur geta einstaklingar og fyrirtæki heitið krónum á hvern áhorfanda sem mætir í húsið. Hluti áheitainnkomunnar í LUV-sjóðinn.

Nánar um áheitaleikinn: https://fh.is/Handbolti/Handboltafrettir/Frett/aheitaleikurhandboltansfhvalur

Mætum og styðum okkar menn! Áfram FH!

 

Aðrar fréttir