Markalaust gegn Fylki

Markalaust gegn Fylki

                Daði

   Gummi Sverrir Tommy Freyr

               Davíð (Matti Vill)
          Dennis Siim       Ásgeir

Matti                                         Tryggvi
                  Arnar (Atli Guðna)

FH-ingar voru sterkari í fyrri hálfleik og Dennis Siim átti besta færi hálfleiksins en markvörður Fylkis varði vel af stuttu færi.

Þegar líða tók á seinni hálfleik náðu Fylkismenn yfirhöndinni og áttu nokkur hættuleg færi sem fóru forgörðum. FH-ingar áttu eitt dauðafæri á síðustu mínútu þegar Guðmundur Sævarsson átti góðan sprett upp kantinn og átti frábæra sendingu inn fyrir á Matthías Guðmundsson en Fjalar sá við honum í Fylkismarkinu.

Sjö mínútum fyrir leikslok fengu Tryggvi Guðmundsson og Valur Fannar Gíslason Fylkismaður báðir að líta rauða spjaldið. Þeir lentu í samstuði á miðjum vellinum, Tryggi slæmdi hendi til Vals sem kýldi Tryggva í andlitið og dómarinn tók þá ákvörðun að reka báða útaf.

Guðmundur Sævarsson var frískur í hægri bakverðinum og er farinn að leika eins og hann lék best. Sverrir Garðarsson lék frábærlega í miðverðinum og Daði Lárusson var öruggur milli stanganna.

Hér má sjá myndir sem meistari Jói Long smellti.

Aðrar fréttir