Meistaraflokkur karla á Norðlenska.

Meistaraflokkur karla á Norðlenska.

Meistaraflokkur karla í handbolta hóf leik á Norðlenska mótinu sem leikið er á Akureyri þessa helgina. Fyrsti leikur FH var gegn Stjörnunni, en Stjörnumenn hafa fínu liði að skipa þrátt fyrir að leika í 1.deild. Til að gera langa sögu stutta þá vannst þægilegur 10 marka sigur, 34-24, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 16-12 FH í vil. Þetta er fínasta byrjun hjá FH-ingum, en liðið hefur nú endurheimt þá Ólaf Guðmundsson og Loga Geirsson úr meiðslum og munar töluvert um þá tvo. Markahæstur FH-inga að þessu sinni var Akureyringurinn með FH hjartað hann Ásbjörn Friðriksson, hann gerði 6 mörk að þessu sinni, annars dreifðist markaskorunin nokkuð vel og margir voru að leggja í púkkið.

FH liðið mætir svo Val í dag. Úrslitin í þeim leik ráða því um hvaða sæti liðið spilar seinna í dag. FH.IS fylgist með stöðu mála og uppfærir FH-inga á FH.IS

Aðrar fréttir