Meistari meistaranna kvenna á morgun!!
Á morgun verður leikið í leik meistari meistaranna. Þessir leikir hafa verið skemmtileg hefð hjá HSÍ en þá mæta Íslandsmeistarar bikarmeisturum en í fyrra enduðu Stjörnu stúlkur með báða titlana en þar sem að FH var í öðru sæti í bikar spila þær þennan leik.
Liðið hefur verið á stífum æfingum í sumar og núna er kominn tími á alvöru leik. Það er að sjálfsögðu spilað upp bikar og vitum við öll hvað bikarar taka sig vel út í Kaplakrika. Liðið hefur tekið smávægilegum breytingum frá því í fyrra, nokkrar farnar, nokkrar farnar að reima aftur á sig skóna og ungir kjúklingar eru að stíga upp.
FH liðið tók þátt í æfingamóti um helgina og var það fínt til að ná að spila sig saman.
Við stelpurnar í FH biðjum ykkur FH inga að mæta á morgun og slá saman höndum og vera okkar stuðningur.
Með skærustu FH kveðju
Dísa & Birna