Mfl. fl. kv. spilar um sæti í Úrvalsdeild
Síðastliðna helgi fór FH góða ferð norður í land og lék tvo leiki á tveimur dögum. Fyrst mætti FH sterku lið i Völsungs á Húsavík og lauk þeirri viðureign með 1-1 jafntefli. Síðari leikurinn var svo gegn Draupni á Akureyri en þar unnu stelpurnar stórssigur 1-8. Með stigin fjögur í farteskinu tryggðu þær sér 3ja sæti í B-riðli 1. deildar á eftir Haukum og ÍBV. Niðurstaðan þýddi að FH mætir Þrótti sem hafnaði 2. sæti í A-riðli í tveimur leikjum, heima og að heiman. Fyrri leikurinn fer fram í Krikanum á laugardag, þann 22. kl. 12:30 en sá síðari á þriðjudaginn 25. ágúst kl. 18:00 á Valbjarnarvelli í Laugardal. Fáeinum klukkustundum síðar eða kl. 16:00 fer svo fram leikur FH og Grindarvíkur í Pepsi-deild karla þar sem FH getur tryggt sér titilinn í 5. sinn á 6 árum.
Við skorum alla að mæta og styðja stelpurnar og kíkja svo á leikinn hjá strákunum í framhaldinu og styðja við bakið á liðunum. Frítt er inn að völlinn í báður leikjum.
Áfram FH!!!