Mfl karla mætir Fram í kvöld.

Mfl karla mætir Fram í kvöld.

Þið ykkar sem eruð að velta fyrir ykkur hvernig eyða eigi kvöldinu í kvöld ættuð að skella ykkur út fyrir bæjarmörkin og bruna í Safamýrina, þar sem mfl karla mætir Fram í 2 umferð Olísdeildarinn.

 

Strákarnir byrjuðu mótið með því að gera jafntefli við íslandsmeistara ÍBV síðastliðinn föstudag í krikanum og nú heldur fjörið áfram. Það væri gaman að FH-ingar myndu fjölmenna og styðja strákana. Leikurinn hefst kl 19:30 í íþróttahúsi Fram við Safamýri.

 

Næsti heimaleikur strákanna er svo á fimmtudaginn þegar Haukarnir koma í heimsókn í Krikann.

 

ÁFRAM FH

Aðrar fréttir