Mfl. kv. í æfingaferð til Portúgal
Annan í Páskum héldu þau Jón og Arna, þjálfarar mfl. kv., ásamt fríðu föruneyti til Portúgal í æfingaferð.
Liðið heldur til í Albufeira en þar verða einnig fyrir karla- og kvennalið Stjörnunnar ásamt kvennaliði Hauka. Haft var eftir Jóni Þór, skömmu fyrir brottför, að “…ferðin væri með hefðbundnu snið; æft tvisvar á dag og leiknir æfingaleikir við íslensku liðin.”
Fararstjóri í ferðinni er engin önnur en reynsluboltin og valkyrjan Margrét “Gréta” Brandsdóttir en hún tók á móti mörgum þeirra stúlkna, sem nú leika með mfl., á sína fyrstu fótboltaæfingu.
Liðið er svo væntanlegt til baka þriðjudaginn 13. apríl en þann sama dag halda Heimir og félagar í mfl. karla á sama stað í sömu erindagjörðum.
Úrslit úr leikjum liðsins í Portúgal verða birt á fh.is.