Mfl kvenna: Ósigur gegn Fram

Mfl kvenna: Ósigur gegn Fram

FH stelpur töpuðu gegn Fram 27-37 í Kaplakrika.

FH byrjaði vel en jafnt var með liðunum fyrstu fimmtán mínúturnar. Fram seig svo fram úr og hafði tíu marka sigur úr býtum eftir að staðan hafði verið 12-18 í leikhléi.

Mörk FH skoruðu:

Heiðdís Rún 7, Ragnhildur Rósa 6, Gunnur 5, Ingibjörg 4, Steinunn 2, Sigrún 2, Hind 1.

Við minnum á leikinn á þriðjudaginn 9.nóvember  í 16-liða úrslitum bikarsins en þá koma Fylkis stúlkur í heimsókn í Krikann. Á FH harma að hefna eftir tap í síðustu viðureign liðanna. Leikurinn hefst klukkan 20.00.

Áfram FH!

Aðrar fréttir