Mikilvægur leikur á sunnudag

Mikilvægur leikur á sunnudag

Sunnudaginn næstkomandi kl. 13:00 fer fram leikur Stjörnunnar og FH á “teppinu” í Garðabænum í Pepsi-deild kvenna.

Stelpurnar hafa verið að spila vel að undanförnu og halað inn 10 stigum í síðastliðnum 5 umferðum. Sigur í síðast leik gegn Blikum á hemavelli gefur liðinu góða von um að halda sæti sínu í efstu deild. Stelpurnar eru sem stendur í næst neðsta sæti með 13 stig en fyrir ofan eru Grindavík með 15 og Afturelding með 16. Nú þegar tvær umferðir eru eftir er botnbaráttan hörð og ekkert þessara liða má misstíga sig. Sem fyrr segir á FH eftir Stjörnuna á útivelli og Hauka á heimavelli í síðustu umferð. Grindavík á eftir Val á útivelli og Fylkir á heimavelli. Afturelding á hins vegar eftir Fylkir á útivelli og Þór frá Akureyri á heimavelli.

Skorað eru alla FH-inga til sjávar og sveita að mæta og styðja stelpurnar í Garðabænum.

Aðrar fréttir