Mikilvægur sigur í Keflavík

Mikilvægur sigur í Keflavík

Það má segja að leikurinn hafi verið ágætlega leikinn og bæði lið fengu sín færi. FH-ingar eru enn að slípast saman sem eðlilegt er á þessum árstíma og eiga eftir að spila betur. Tvíburarnir og Matthías falla frábærlega inn í leik liðsins og eru mikill styrkur. Við þurfum að halda boltanum aðeins betur innan liðsins við höfum ekki mannskap í að vera með langar sendingar fram en það á allt eftir að koma.

Sverrir og Tommy voru traustir í öftustu línu, sömuleiðis Freyr en Gummi var ekki líkur sjálfum sér. Matthías var mjög ógnandi frammi. Dekkingingin á miðjunni var full laus í reipunum en við náðum góðum tökum á miðjunni þegar Ásgeir kom inn.

Aðrar fréttir