Morgunverður föstud 28 feb milli 07.15 og 9.00  í Kaplakrika

Morgunverður föstud 28 feb milli 07.15 og 9.00 í Kaplakrika

Kæru FH-ingar,

Í tilefni af stórleik FH og Hauka í undanúrslitum Coca Cola bikarsins í handbolta á föstudaginn þá hefur verið ákveðið að bjóða til morgunverðar í Sjónarhól glæsilegum veislusal okkar FH-inga í Kaplakrika næstkomandi föstudag milli kl 07:15 og 9:00. Þarna gefst FH-ingum tækifæri til að hittast, fá sér ilmandi morgunmat fyrir vinnu og skóla ásamt því að kaupa sér miða á leikinn, en allur ágóði af seldum miðum í forsölu í Kaplakrika rennur til FH. Á svæðinu verða aðilar frá mfl FH og aldrei að vita nema nostalgíu sigrar verði rifjaðir upp á risaskjá.

Okkar frábæru samstarfsaðilar, Innnes, Kjötbankinn, Kjötkompaníið, Sölufélag íslenskra garðyrkjubænda og Bæjarbakarí hafa lagt sitt að mörkum til að gera morgunmatinn sem glæsilegastan og bjóða FH-ingum upp á frían morgunmat og kunnum við þeim bestu þakkir.

 

Miðinn á leik FH og Hauka kostar litlar 1500 kr, sem er gjafaverð fyrir þá frábæru umgjörð og þá miklu stemmingu sem boðið verður upp á í Laugardalshöllinni á föstudagskvöldið.

 

VIÐ ERUM FH

 

ÁFRAM FH

 

Aðrar fréttir