Muggur 90 ára – 25. september

Muggur: Fæddur 25. september 1935 – dáinn 1. mars 1988.

Einn af mínum bestu vinum Guðmundur Jónsson eða Muggur eins og við FH-ingar og reyndar allir Hafnfirðingar kölluðu hann, hefði orðið 90 ára í dag 25. september. Í tilefni þess birtist hér grein sem ég skrifaði um hann í afmælisblaði FH 1979 ásamt nokkrum myndum til minningar um góðan dreng sem kenndi okkur svo margt um lífið á sinn einstaka hátt!

Ingvar Viktorsson

Þegar FH fór fyrst verulega að geta sér nafns í handknattleik eða á árunum í kringum 1955 myndaðist í félaginu ákveðinn kjarni ungra og vaskra drengja á svipuðum aldri. Þeir voru á þessum árum á aldrinum 16 til 20 ára. Sjálfir kölluðu þeir sig «Klikkuna» og var samstaða þessa hóps geysilegt, svo að enn þann dag í dag minnast menn þess. Allir hafa þeir nú lagt skóna á hilluna, en fást þó enn sumir hverjir við þjálfun eða störf í kringum handknattleikinn eins og Birgir Björnsson, bræðurnir Ragnar og Bergþór Jónssynir og Finnbogi Arndal svo einhverjir séu nefndir.

En einn er sá maður sem aldrei hefur skilið við FH allan þennan tíma og það er Guðmundur Jónsson eða Muggur eins og hann er nefndur í daglegu tali. Segja má að Muggur hafi sótt alla leiki FH síðan deildin var stofnuð og hefur hann reynst leikmönnum og þjálfurum FH betri en enginn. Ekki er til nokkur hlutur sem Mugg þykir vænna um en FH og engan þykir FH-ingum jafn vænt um og hann Mugg. Ef Muggur er ekki mættur í klefann fyrir leik þá finnst mönnum eins og eitthvað vanti og hræddur er ég um að sjá leikur yrði einkennilegur hjá FH ef leikmenn söknuðu Muggs. Þegar leikið er á útivöllum er Muggur alltaf með. Einu sinni varð þó mönnum á í messunni og lagt var af stað til Reykjavíkur fyrr en áætlað hafði verið og Muggur ekki mættur, en hann er manna stundvísastur, og af einhverjum óskiljanlegum ástæðum gleymdist hann, en það kemur aldrei fyrir aftur. Eins og Muggur var innilega leiður í það skiptið þá er gleði hans yfir unnum FH leik slík að þó ekki fengist annað út úr leiknum en það að samgleðjast honum þá væru menn ánægðir. Slík er gleði hans og ánægja að allir hljóða að hrífast með. Það hefur verið okkur FH-ingum mjög mikill styrkur í gegnum árin að geta átt að vini og stuðningsmanni jafn einlægan og fölskvalausan mann og Muggur er og fyrir það verðum við alla tíð þakklátir.

Í 50 ára afmælishófi FH haustið 1979 færði hann handknattleiksdeildinni veglegan bikar að gjöf og skal bikarinn afhentur til varðveislu þeim leikmanni er fram úr skarar í meistaraflokki karla á keppnistímabilinu jafnt í leik sem á æfingum. Er bikarinn farandgripur sem afhendast skal 10 sinnum og skal grafa nafn viðkomandi leikmanns á bikarinn en að 10 árum liðnum skal FH eignast bikarinn. Afhenti Muggur sjálfur bikarinn í hófi og verður sú stund öllum FH-ingum er viðstaddir voru ógleymanleg. Þar kom e.t.v. best í ljós hversu mikils virði Muggur er FH, en lófatakinu ætlaði aldrei að linna er Muggur afhenti gripinn. Við sama tækifæri afhentu systkini Muggs og afkomendur þeirra FH gjöf sem þakklætisvott fyrir þá umhyggju og ræktarsemi sem félagið hafði sýnt honum. Er þetta sennilega einhver mesta og besta viðurkenning sem FH hefur hlotið. Þá var Mugg við þetta tækifæri afhent 15 ára starfsmerki FH.

Við FH-ingar vitum að Muggur hefur reynst okkur mikilvægur í gegnum mörg ár vegna þess að hann hefur kennt okkur að það fólk sem dags daglega er kallað minni máttar í þjóðfélaginu jafn mikils virði og við hin ef þú aðeins lítur á það sem jafningja og kemur fram við það seins og þú vilt að aðrir komi fram við þig. Aðeins það að skilja þetta er mikils virði.

En ágæti Muggur, FH maður nr. 13, þér leiðast svona langlokur og þess vegna er mál að hætta og við segjum bara eins og venjulega „Áfram FH“ svo sjáumst við á næstu æfingu.

Ingvar Viktorsson

Aðrar fréttir

Secret Link