Námskeið í rafíþróttum (tölvuleikjaspilun)
FH býður upp á tvö rafíþróttanámskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 9-14 ára í Kaplakrika í júlí. Líklega verða fleiri slík námskeið haldin í ágúst.
Í yngri hópi eru 9-11 ára og í eldri hópi eru 12-14 ára. Reynt verður að flokka þátttakendur hvors hóps eftir aldri.
Ungmennin fá m.a. kennslu í ábyrgri spilun tölvuleikja, þau spila undir eftirliti og leiðsögn þjálfara og hita upp með léttum líkamlegum æfingum og teygjum.
Tölvuleikjaspilunin fer fram í glæsilegri aðstöðu gegnt aðalinngangi í Kaplakrika.
FORTNITE 15.-18. júlí Yngri hópur: kl. 9-11 Eldri hópur: kl. 13-15 |
FIFA 19 22.-25. júlí Yngri hópur: kl. 9-11 Eldri hópur: kl. 13-15 |
Verð fyrir hvort námskeið er 12.000 krónur.
Skráning á námskeiðin fer fram í gegnum NORA-kerfið og skráningin hefst 5. júlí. Einungis er hægt að taka á móti 10 ungmennum í hvorum aldurshópi á hvert námskeið.
Mögulega þarf að endurraða á námskeiðin m.v. þátttöku.
Umsjónarmenn og yfirþjálfarar námskeiðanna eru
Georg Ólafsson og Gísli Geir Gíslason, auk aðstoðar-