Norðurlandamót í skylmingum í Helsinki

Norðurlandamót í skylmingum í Helsinki

Keppnisdagur 1, 26. Okt 2013

Keppni á Norðurlandamótinu í skylmingum í Helsinki hófst 26. okt. Á fyrsta keppnisdegi var keppt í karla og kvennaflokki í undir 15. ára, U17 og fullorðinsflokki.Norðurlandamót 2013

Í kvennaflokki sigraði Þorbjörg Ágústsdóttir Emmi Rydenfelt í úrslitaleiknum með yfirburðum 15:9. Í þriðja sæti höfnuðu Þórdís Ylfa Viðarsdóttir (FH) og Aldís Edda Ingvarsdóttir (FH).

Í karlaflokki sýndu íslensku skylmingamennirnir mikla yfirburði með að taka fyrstu þrjú sætin. í úrslitum áttust við Hilmar Örn Jónsson (FH)  og Gunnar Egill Ágústsson (FH) og endaði leikurinn með sigri Hilmars 15:7. Í þriðja sæti voru Guðjón Ragnar Brynjarsson (FH) og Mika Roman frá Finnlandi.

Í flokki U17 og undir 15 ára sigruðu Íslendingar bæði í karla og kvennaflokki.

U17 karlar
1. sæti Róbert Elís Villalobos (FH)
2. sæti Nikulás Yamamoto Barkarson
3. sæti Magni Snævar Jónsson (FH)
3. sæti Max Asplund

U17 Kvenna 
1. sæti Anna Margrét Ólafsdóttir
2. sæti Magnea K. Jansdóttir
3. sæti Freyja Sif Stefnisdóttir
3. sæti Eydís Eiðsdóttir

U15 kvenna
1. sæti Freyja Sif Stefnisdóttir
2. sæti Anna Margrét Ólafsdóttir
3. sæti Magnea K. Jansdóttir
3. sæti Eydís Eiðsdóttir

U15 karla
1. sæti Róbert Elís Villalobos (FH)
2. sæti Ágúst Þór Hafsteinsson (FH)
3. sæti Atli Björn Sigurðsson (FH)

 

Keppnidagur 2, 27. Okt 2013

Team Iceland bætti við þrjá Norðurlandatitla á lokadegi mótsins og þar með tóku öll gulliverðlaunin á mótinu.

Í ungmennaflokki karla (U20) sigraði Hilmar Örn Jónsson (FH)  Guðjón Ragnar Brynjarsson (FH)  og tók þar með sín önnur gullverðlaun í einstaklingskeppni á mótinu en hann vann einnig í karlaflokki í gær. Í þriðja sæti voru Nikulás Yamamoto Barkarsson og Sebastian Bringstrump.

Í ungmennaflokki kvenna (U21) áttust við þær Þórdís Ylfa Viðarsdóttir (FH)  og Aldís Edda Ingvarsdóttir (FH) og eftir einn glæsilegasta bardaga mótsins sigraði Aldís Edda 15:14. Í þriðja sæti voru Kolfinna Jónsdóttir og Freyja Stefnisdóttir. 

Í úrslitum í liðakeppni áttust við lið Íslands og Finnlands. Ísland sýndi mikla yfirburði í leiknum og sigruðu með 45 stigum gegn 18 stigum Finnanna. Í 3. sæti var Danmörk. Í liði Ísland

Aðrar fréttir