Nýkjörin stjórn handknattleiksdeildar FH

Aðalfundur handknattleiksdeildar FH fór fram í gær og var Ágúst Bjarni Garðarsson endurkjörinn formaður deildarinnar til eins árs. Kosið var um fjögur laus sæti í stjórn til næstu tveggja ára. Fjögur voru í framboði og voru þau öll kjörin. Þetta voru þau Tryggvi Rafnsson, Sigurður Örn Þorleifsson, Pétur Þórarinsson og Hafdís Kristínardóttir. Hafdís er ný í stjórn en Ísleifur Orri Arnarsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Ísleifi var þakkað fyrir vel unnin störf og Hafdís var boðin velkomin í stjórn handknattleiksdeildar.

Stjórn FH 2026-2027 er því eftirfarandi:

Ágúst Bjarni Garðarsson, formaður

Birna Íris Helgadóttir

Gestur Steinþórsson

Hafdís Kristínardóttir

Orri Björnsson

Ólafur Guðlaugsson

Pétur Þórarinsson

Sigurður Örn Þorleifsson

Tryggvi Rafnsson

Aðrar fréttir

Secret Link