Nýr þáttur af FH TV, Orri Þórðar.
Um helgina kom út nýr þáttur af FH TV á samfélagsmiðlum. Þátturinn er um Orra Þórðarson, sannan FHing sem á dögunum lét af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna en hann hefur stýrt liðinu frá haustmánuðum 2014. Orri hefur þjálfað samfellt hina ýmsu flokka frá árinu 1995 og í tilefni þess að hann er nú kominn í kærkomið frí tókum við hús á þessum meistara. #ViðerumFH
Hér er hægt að sjá þáttinn