Ólafur til AG Köbenhavn
Ólafur til AG Köbenhavn
Handknattleiksdeild FH og AG Köbenhavn hafa komist að samkomulagi um sölu á Ólafi Guðmundssyni leikmanni meistaraflokks FH í handknattleik frá 1. júní 2010. Ólafur mun hins vegar spila með FH liðinu á næsta tímabili sem lánsmaður frá AG.

Fá fordæmi eru fyrir samningi sem þessum en handknattleiksdeild FH hefur verið í nánu samstarfi við Guðmund Guðmundsson, íþróttastjóra AG og fjölskyldu Ólafs til að ná sem farsælastri niðurstöðu fyrir alla aðila.
Þetta þýðir að Ólafur mun spila eitt tímabil í viðbót í N1 deildinni og öðlast því dýrmæta reynslu áður en hann leggur land undir fót til Danmerkur og spilar með einu sterkasta liði dönsku deildarinnar.
Um er að ræða mikil tímamót fyrir Ólaf og viðurkenning á hæfileikum hans og getu sem handboltamanns. Um leið eru þetta góðar fréttir fyrir FH sem mun fá að njóta krafta hans á næsta tímabili, enda afar mikilvægur liðinu á nýliðnum vetri.
FH.is óskar Ólafi til hamingju með þennan áfanga!
