Opin æfing í kvöld hjá mfl kk og kvk

Opin æfing í kvöld hjá mfl kk og kvk

Öllum velunnurum FH er velkomið að kíkja í Krikann, heilsa uppá leikmenn
og aðra sem í húsinu verða.  Í vetur mun FH einnig verða með U-lið í
karlaflokki sem spila mun í 1 deild og er það fínn undirbúningur fyrir
strákana sem þar spila.  Jafnvel mun U-liðið etja kappi við mfl kk á
fimmtud.
Gefst þá einnig tækifæri fyrir fólk að láta vita hvort áhuga sé á að
vinna með okkur í vetur. Okkur vantar alltaf aðstoð við að gera
umgjörðina sem besta
Við leitum bæði eftir körlum og
konum á öllum aldri, eina krafan sem gerð er að viðkomandi hafi gaman af
félagsstarfi og vilji FH það besta.

Við leitum eftir fólki í fjöldamörg störf t.d
Uppsetningu við leiki.
Aðstoð við gæslu.
Umsjón með veitingum í Bakhjarla herbergi.
Aðstoð við grill á leikjum.
Aðstoð við tölfræði og tölvumál.
Aðstoð á tímavarðaborði.
Einnig leitum við að fólki sem er tilbúið að koma beint að því að aðstoða við meistaraflokka félagsins og ungmennalið.
Boðið verður upp á veitingar að æfingu lokinni.

munið …. fimmtudaginn kl 18.00 mun æfingin hefjast og allir FH-ingar velkomnir.




Handknattleiksdeild


Aðrar fréttir