Orðuveitingar frá FH.
Heiðursfélagi FH Stjarna FH, fyrir langt og giftudrjúgt starf fyrir félagið.
Haraldur S. Magnússon.
Gullmerki FH með lárviðarsveig fyrir 25 ára frábært starf fyrir félagið.
Guðmundur Karlsson, Magnús Haraldsson, Ragnheiður Ólafsdóttir, Sigurður Haraldsson, Sigurður Pétur Sigmundsson, Sigurður T. Sigurðsson og Trausti Sveinbjörnsson.
Silfurmerki FH með lárviðarsveig fyrir 20 ára frábært starf eða keppni fyrir félagið.
Eggert Bogason, Elísabet Ólafsdóttir, Hreiðar Gíslason, Jóhann Ingibergsson, Kristinn Guðlaugsson, Linda B. Loftsdóttir, Páll Ólafsson, Rut Ólafsdóttir, Steinn Jóhannsson og Súsanna Helgadóttir.
Gullpeningur FH fyrir 15 ára starf eða keppni fyrir félagið.
Birna Björnsdóttir, Bjarni Þór Traustason, Björn Pétursson, Finnbogi Gylfason, Gunnar Smith, Helgi Freyr Kristinsson, Smári Björn Guðmundsson, Svana Huld Linnet, Torfi Kristinsson, Unnur Sigurðardóttir og Þórarinn Sveinsson.
Silfurpeningur FH fyrir 10 ára starf eða keppni fyrir félagið.
Árni Már Jónsson, Ásbjörn Jónsson, Daði Garðarsson, Gísli Guðmundsson, Guðmundur Þórðarson, Hallgrímur Tómas Ragnarsson, Hrönn Bergþórsdóttir, Ívar J. Arndal, Jón Auðun Sigurjónsson, Jón Ásgrímsson, Ólafur Sveinn Traustason, Rakel Tryggvadóttir, Þorvarður Jónsson og Þórhallur Jóhannesson.
Reglugerð um orðuveitingarnar er hér fyrir neðan.
Reglugerð um heiðursformann, heiðursfélaga og viðurkenningarmerki Fimleikafélags Hafnarfjarðar sbr. 16. gr. laga félagsins.
1. gr.
Kjósa má heiðursformann. Hann skal kosinn á aðalfundi sbr. 8. gr., lið 10.b laga félagsins. Heiðursformaður er undanþeginn öllum kvöðum til félagsins og hefur öll réttindi innan þess svo og aðalstjórnar félagsins. Aðeins getur einn heiðursformaður verið hverju sinni. Kjósa má heiðursfélaga og skal þá afhent heiðursfélagaskírteini og stjarna FH. Framangreind heiðursveiting er æðsti heiður, er félagið veitir.
2. gr.
Aðalstjórn félagsins kýs heiðursfélaga og þurfa minnst 2/3 stjórnarmanna að vera því samþykkir. Heiðursfélagar eru undanþegnir árgjöldum, en hafa öll réttindi.
3. gr.
Eftirfarandi heiðursmerki skulu veitt eftir sömu reglum og gilda um kosningu heiðursfélaga:
1. Stjarna FH fyrir langt og frábært starf í þágu félagsins. Aldrei mega fleiri en 10 heiðursfélagar vera handhafar stjörnunnar.
2. Gullmerki FH með lárviðarsveig fyrir frábær störf í þágu félagsins, en þó aldrei fyrr en eftir 25 ára starf.
3. Silfurmerki FH með lárviðarsveig fyrir 20 ára frábært starf eða keppni fyrir félagið.
4. Gullpeningur FH fyrir 15 ára starf eða keppni fyrir félagið.
5. Silfurpeningur FH fyrir 10 ára starf eða keppni fyrir félagið.
6. FH merki úr gulli, sem aðalstjórn leyfist að veita, ef hún telur ástæðu til.
7. Aðalstjórn er heimilt að veita „félagsmálastöng FH“, sem er áletruð viðurkenning með FH merkinu. Félagsmálastöng FH veitist þeim, sem eru starfandi í félaginu og hafa hlotið gullmerki FH með lárviðarsveig, við merkisafmæli eða önnur tímamót viðkomandi félagsmanns.
4. gr.
Starfs- og keppnisaldur skal miðaður við 16 ára aldur.