Orri áfram með meistaraflokk kvenna

Orri Þórðarson skrifaði í dag undir nýjan samning við FH um þjálfun meistaraflokks kvenna á næsta keppnistímabili. Orri hefur hefur þjálfað liðið sl. þrjú keppnistímabil og verður þetta því fjórða ár hans með liðið. Árið 2015 komst liðið upp úr 1. deild í Pepsí deildina undir hans stjórn. Á fyrsta ári liðsins aftur í Pepsí deildinni 2016 lenti liðið í 6. sæti með 17 stig en í sumar tryggði liðið sér 6. sætið með 23 stig sem er nýtt stigamet FH í efstu deild. Það er því mikið ánægjuefni að búið sé að ganga frá ráðningu Orra hjá meistarflokki kvenna í FH.

Orri var ánægður að undirskrift lokinni. „Ég er mjög ánægður með liðið í sumar og hvernig stelpurnar stóðu sig. Liðið hefur tekið miklum framförum frá fyrri tímabilum. Og við stefnum að því að halda okkar leikmönnum og styrkja liðið fyrir átökin á næsta tímabili. Það er ekkert leyndarmál að eftir þennan fína árangur í sumar þá stefnum við hærra. Við viljum gera alvöru atlögu að efri hluta deildarinnar og höfum sett markmiðið á að enda í efri hluta deildarinnar næsta sumar. Þannig að ég hlakka bara mikið til að hefja undirbúninginn fyrir næsta sumar.“

Aðrar fréttir