Pálmar og Jón Heiðar í FH

Pálmar og Jón Heiðar í FH

Jón Heiðar og Pálmar ásamt Þorgeiri formanni við undirskrift

Pálmar Pétursson, 25 ára markvörður,  sem leikið hefur með Val og Jón Heiðar Gunnarsson, 28 ára línumaður, sem leikið hefur með Stjörnunni, hafa samið við handknattleiksdeild FH um að leika með félaginu. Pálmar til 3. ára og Jón Heiðar til  2. ára.

 

Pálmar er uppalinn hjá Völsungi á Húsavík en fluttist fljótlega til Reykjavíkur og gekk til liðs við Valsara við góðan orðstír. Pálmar er mjög öflugur markvörður og var valinn í framtíðarlandslið Íslands, 2012 landsliðið og hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands. Hann hefur lengst af deilt markvarðarstöðunni hjá Val með Ólafi Hauki Gíslasyni sem valinn var besti markvörður  N1 deildarinnar á nýafstöðnu tímabili.

 

Jón Heiðar er uppalinn í HK en hefur einnig leikið með ÍR og seinast Stjörnunni. Jón er afar öflugur línumaður og einnig mjög sterkur varnarmaður.  

 

Án efa munu þessir leikmenn verða gríðarlegur styrkur fyrir hið unga lið FH sem lék vel á tímabilinu sem var að ljúka og var hársbreidd frá því að tryggja sér þátttökurétt í úrslitakeppninni. Koma þeirra samræmist stefnu félagsins um að byggja á ungum og öflugum leikmönnum til framtíðar.

Aðrar fréttir