Ragnhildur besti miðjumaður, FH með bestu umgjörð
Í dag voru veittar viðurkenningar í efstu deildum karla og kvenna í handboltanum fyrir umferðir 8-14. Í kvennaflokki var Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir, fyrirliði kjörinn besti miðjumaður úrvalsdeildar kvenna. Frábær árangur hjá henni sem þó þarf ekki að koma á óvart þar sem hún hefur átt hvern stórleikinn á fætur öðrum síðustu vikurnar.
Þá var FH verðlaunað fyrir bestu umgjörðina um heimaleiki í deildinni. Við erum mjög ánægð með þá viðurkenningu því það hefur verið lögð mikil vinna í að bæta umgjörðina og skapa skemmtilegt og fjölskylduvænt umhverfi á heimaleikjum okkar. Jafnframt hvetur þetta okkur til að halda áfram á sömu braut og jafnvel gera enn betur það sem eftir lifir vetrar.
Áfram FH!!!