Risa leikur í Evrópukeppni á fimmtudag

Risa leikur í Evrópukeppni á fimmtudag

Nú er komið að stórleik í Evrópudeildinni, en á fimmtudaginn koma Hvít-Rússarnir í Neman Grodno í heimsókn. Leikurinn er seinni leikur liðanna í annari umferð forkeppnar Evrópudeildarinnar, en fyrri leikurinn fór 1-1. Leikurinn hefst stundvíslega klukkan 19:15. 

Því er um að ræða gífurlega mikilvægan leik á fimmtudaginn og þurfa strákarnir á öllum okkar stuðningi að halda. Frábær sigur gegn Breiðablik á mánudag og stuðningurinn hefur farið batnandi með hverjum leiknum og verið virkilega öflugur uppá síðkastið.

Nú fyllum við Krikann! Upphitun á English frá 16:00, hamborgarar í Krikanum frá 18:00, en þá hefst einnig miðasala. Allir á völlinn og látum í okkur heyra enda afar skemmtilegt að fara langt í Evrópukeppni eins og við FH-ingar kynntumst í fyrra! ÁFRAM FH!

Aðrar fréttir