Sagan endurtekur sig…

Sagan endurtekur sig…

Það er ljóst að sagan mun endurtaka sig í Eimskipsbikarnum þetta árið því
annað árið í röð munu Haukar heimsækja okkur FHinga í 8 liða úrslitum.
Vonandi mun sagan endurtaka sig alla leið því sælla minningar sigraði FH
leikinn 29-28 eftir að hafa leitt leikinn og haft nokkra yfirburði allan leikinn. Leikurinn mun fara fram 6. eða 7. desember. Stelpurnar munu mæta KA/Þór í Kaplakrika 19. eða 20. desember.

Dregið var í 8 liða úrslit í hádeginu og verða aðrir leikir eins og hér segir:

Leikir í 8-liða úrslitum karla:

FH – Haukar

Valur – Fram

Selfoss – HK

Víkingur – Grótta

Leikirnir eiga að fara fram 6. og 7. desember.


Leikir í 8-liða úrslitum kvenna:

Víkingur 2 – Valur

Grótta – Fram

FH – KA/Þór

Stjarnan – Haukar

Leikirnir hjá konunum eiga að fara fram 19. og 20. janúar.


Aðrar fréttir