
Sálfræðistríðið er hafið
Sálfræðistríðið sem hófst fyrir fyrstu viðureign FH og Fram nær hámarki á morgun þegar FH og Fram mætast í oddaleik liðanna. Þetta hófst allt á því að Hjálmar Vilhjálmsson (stjórnarmaður hjá Fram) lýsti þeirri skoðun sinni í tölvupósti til handknattleiksdeildar FH fyrir fyrsta leikinn að það væri synd og skömm að FH-ingar fengju bara einn heimaleik í úrslitakeppninni.
Við FH-ingar svöruðum þessu með sannfærandi sigri á Fram.
Við skorum nú á Framara að fylla gestastúkuna og hjálpa til við að skapa frábæra stemningu í kvöld!