Sannkallað Meistaraball!
Á laugardagskvöld verður sannkallað Meistaraball í Kaplakrika. Það eru risa böndin EGO og Papar sem halda stuðinu uppi fram á rauða nótt. Miðasala fer fram á Súfistanum og á www.midi.is. Við hvetjum alla FH-inga og Hafnfirðinga almennt til að tryggja sér miða í fjörið.
Þetta er meistaraball og er það nafn með rentu þar sem margir meistarar koma þar fram og verða á svæðinu. FHingar fagna Íslandsmeistaratitili í pepsideild karla, Haukar fagna í fyrsta sinn í langan tíma veru sinni í efstu deild karla í fótbolta, það verða einnig sannkallaðir ballmeistarar á sviðinu því EGÓ&PAPAR leiða saman hesta sína og loka samstarfi yfirskriftarinnar “sumarið er tíminn” í Kaplakrikanum. Þetta er ekki í fyrsta skipti í ár sem þessar hljómsveitir koma saman því þær hófu einmitt ” sumarið er tíminn” í Íþróttahúsinu í Strandgötunni í Hafnarfirði þann 06. júní s.l . Það er því vel við hæfi að enda frábært sumar þar sem það hófst. Við óskum öllum Hafnfirðingum til hamingju með árangur sumarsins og hlökkum til að sjá sem flesta í krikanum á laugardaginn.
Húsið opnar kl 23.00