Sigur gegn Fram og 2 leikir gegn Haukum

Sigur gegn Fram og 2 leikir gegn Haukum

Stelpurnar í meistaraflokki kvenna unnu góðan sigur á Fram á miðvikudagskvöldið, 27-22, en leikurinn fór fram í Kaplakrika. Með sigrinum skutust þær upp í 3. sæti deildarinnar, stigi á eftir ÍBV í fyrsta sætinu og með jafn mörg stig og Haukar, sem eiga leik til góða.

Það verður því hörkuleikur á laugardaginn 14. janúar í Kaplakrika þegar Haukarnir mæta í heimsókn. Leikurinn hefst kl. 16.15 og eru allir sem vettlingi geta valdið hvattir til þess að mæta í Krikann og styðja stelpurnar. Þeim veitir svo sannarlega ekki af því en með sigri geta þær komist í 2. sæti deildarinnar og jafnvel í það 1., fari svo að ÍBV tapi gegn Fram.

En, sama hver úrslitin verða þá þurfa stelpurnar að vera fljótar að setja sig í réttan gír fyrir næsta leik þar á eftir, sem vill svo skemmtilega til að er líka gegn Haukum! Núna eru það 8-liða úrslitin í SS bikarnum en sá leikur hefst kl. 19.15, þriðjudaginn 17. janúar.

Nú er bara að duga eða drepast því að það hefur aldrei þótt leiðinlegt að vinna Hauka í Krikanum, hvað þá heldur að komast upp fyrir þá í deildinni og slá þá útúr bikarnum!

FH-ingar, sýnum því stuðning í verki, mætum í Krikann og styðjum stelpurnar til sigurs.

Áfram FH!

Aðrar fréttir