Sigur í fyrsta leik hjá 3. flokki kvenna í fótbolta
Stelpurnar fóru vel af stað í sínum fyrsta leik í Íslandsmóti í Egilshöllinni í dag. Frábært spil einkendi FH í fyrri hálfleik og þær uppskáru 3. mörk. Það voru þær Guðrún Björg, Valgerður og Sigrún Ella sem sett’ann og forskotið gott þegar flautað var til hlés.
Í síðari hálfleik komust Fjölnisstúlkur vel inn í leikinn og sköpuðu sér nokkur færi. Þær uppskáru þó engin mörk á meðan markamaskínan Sigrún Ella laumaði einu inn hjá Grafarvogsmeyjum. Niðurstaðan var því sanngjarn 4-0 sigur FH.
Það er gott að byrja á sigri ekki síst gegn sterku liði eins og Fjölni sem á án efa eftir að láta til sín taka þegar líða fer á mótið. Allir leikmenn FH á skýrslu spiluðu í dag og allir sýndu sínar bestu hliðar. Meira geta þjálfarar ekki farið fram á.
Næsti leikur FH í 11 manna boltanum er þriðjudaginn 5. júní næstkomandi gegn KR í Krikanum.
Næsti leikur í 7 manna boltanum er hinsvegar á föstudaginn 1. júní næstkomandi á Hamranesvelli kl. 17:30.