
Sigurður Haraldsson eftirlitsdómari á næsta ári
Sigurður Haraldsson, sem í síðasta mánuði var útnefndur alþjóðlegur dómari í frjálsíþróttum, var á fundi stjórnar EAA um helgina skipaður í hóp Evrópudómara (European Panel of Technical Officials). Hans fyrsta alþjóðlega verkefni verður hlutverk eftirlitsdómara á úrtökumóti Evrópu fyrir Ólympíuleika æskunnar, sem fram fer í byrjun júní á næsta ári í Baku í Azerbaijan.
Ólympíuleikar æskunnar verða síðan haldnir í Najing í Kína 12.-17. ágúst. Úrtökumót Evrópu er fyrsta alþjóðlega mótið sem haldið er í Baku í frjálsíþróttum, en fyrstu Ólympíuleikar Evrópu verða síða haldnir í þar í júní 2015.
Á sama fundi var Jónas Egilsson stjórnarmaður EAA og formaður FRÍ tilnefndur sem eftirlitsmaður sambandsins með Evrópubikarkeppni landsliða 1. deild í Tallinn á næsta ári.