Sigurgeir Árni mætir FH

Sigurgeir Árni mætir FH

Sigurgeir Árni mætir FH

Það er óhætt að segja að “gömul” hetja muni etja kappi við sitt gamla félag á morgun í Strandgötunni þegar fyrirliði Íslandsmeistara FH frá 2011 Sigurgeir Árni Ægisson mætir sínum gömlu félögum. Sigurgeir hefur leikið síðastliðin tvö ári í Noregi með Kristansund. 
Það gleymir enginn FH – ingur framlagi Sigurgeirs til fyrsta Íslandsmeistaratitils félagsins í 19 ár í maí 2011. Það er því við hæfi að FH – ingar fjölmenni í Strandgötu og gefi Geira gott klapp og styðji síðan sýna menn til sigurs gegn félögum Sigurgeirs í Kristiansund.

FH – Kristiansund kl. 20:00 í Strandgötu á fimmtudag.

Aðrar fréttir