Silfrið í Kópavoginum
Aðstæður voru frábærar á aðalvellinum í gær á Kópavogsvelli þegar lið FH og Breiðabliks mættust í úrslitaleik Íslandsmót 5. fl. kvenna. Veðrið var gott, fjöldi áhorfenda, góð tónlist og góð stemmning.
Blikar gerðu fyrsta mark leiksins eftir aukaspyrnu í fyrri hálfleik eftir annars jafnan leik. Fátt markvert gerðist fram að hálfleik en liðin börðust eins og ljón og vart mátti milli sjá. Í síðari háfleik var svipuð staða en þegar líða tók á leikinn sóttu FH-ingar í sig veðrið og náðu að skapa sér nokkur færi. En eins og stundum í boltanum þá er liðum refsað fyrir að klára ekki og það gerðu Blikar með marki í lokin. Þar við sat, Breiðablik meistarar en lið FH getur vel við unað því þær gáfust aldrei upp og börðust til síðustu mínútu.
Þrátt fyrir tapið þá er árangur stelpnanna okkar frábær og ljóst að þar fara efnilegar stelpur. Þrátt fyrir tap á vellinum þá gjörsigraði FH baráttuna um stúkuna þar sem fjöldi FH-inga var mættur til að styðja liðið og lét vel í sér heyra með söng og lófaklappi.
Frábær árangur hjá stelpunum sem eflaust ætla sér stóra hluti á komandi árum.
Þjálfarar 5. fl. eru þeir Kári „Doddason“ Þórðar og Þórarinn (Tóti) þórarinsson.