Silja setur Íslandsmet.

Silja setur Íslandsmet.

Silja Úlfarsdóttir setti um helgina Íslandsmet í 200 metra hlaupi á innanhússmóti sem fram fór í Bandaríkjunum en Silja hljóp á 24,32 sek, hún átti gamla metið sjálf en það var 24,38 sek. Þetta var síðasta innanhússmótið sem Silja tók þátt í á þessu keppnistímabili en hún keppti einnig í 400 metra hlaupi á mótinu og hljóp á 54,84 sek., en hún tók þátt í 200 metra hlaupinu hálftíma eftir að keppni lauk í 400 metra hlaupinu sem sýnir að hún er í þrusu formi.

Aðrar fréttir