Silja Úlfarsdóttir með íslandsmet

Silja Úlfarsdóttir með íslandsmet

Silja bætir sig í 200 m hlaupi og setur glæsilegt íslandsmet, hún hljóp á tímanum 24,06 sek í undanrásum hlaupsins, eldra metið var 24,26 sek. Úrslitin eru í dag laugardag kl. 7:30. Silja náði bestum árangri keppenda í undanrásunum og vonandi kemur enn betri bæting í dag og jafnvel að 24 sek múrinn verði rofinn. Þá jafnaði Silja sinn besta árangur í 400 m hlaupi innanhúss, þegar hún hljóp á 54,37 sek í undanrásum. Hún var þar einnig með besta tíma keppenda í því hlaupi. Úrslitahlaupið er kl. 6:30 í dag(laugardag. Áfram Silja hlauptu hratt í dag.

Aðrar fréttir