Skemmdarverk í Kaplakrika

Skemmdarverk í Kaplakrika

Um helgina var lyftinga- og áhaldahúsið okkar í Kaplakrika enn einu sinni fyrir barðinu á skemmdarvörgum. Einhverjir óprúttnir aðilar spenntu upp útihurðina og unnu skemmdarverk á innanstokksmunum og grýttu m.a.eggjum um allt húsið.  Frjálsíþróttamenn og aðrir sem nýta sér lyftingaaðstöðuna í húsinu eru orðnir langþreyttir á ágangi sem þessum og biðja félagsmenn og aðra sem eiga leið um svæðið að kvöldi til að láta vita ef þeir verða varir við grunsamlegar mannaferðir.

Aðrar fréttir